Sigmund Freud
![Picture](/uploads/2/3/7/3/23738855/1444165868.png)
Sigmund Freud fæddist 6. maí árið 1856 í litlum bæ í Móravíu sem er í dag hluti af Tékklandi, sonur fátækra hjóna. Þegar hann var fjögurra ára flutti hann með fjölskyldunni til Vínarborgar þar sem hann síðar fór í háskólann árið 1873 og lærði læknisfræði og stundaði rannsóknir í lífeðlis- og taugafræði. Smám saman snéri hann sér þó að geðlæknisfræði sem varð hans aðal rannsóknarsvið. Hann starfaði sem geð- og taugalæknir kring um aldamótin 1900. Freud var einn helsti upphafsmaður sálgreiningar; safn hugmynda sem lýtur að starfsemi hugans, geðrænum kvillum, starfsemi samfélagsins og uppbyggingu, greiningu bókmennta og ýmsu öðru.
Hann lést 23. september árið 1939 þá 83 ára að aldri í Englandi en þangað hafði hann flúið vegna ofsókna nasista í Austurríki (Guðmundur D. Haraldsson, 2011).
Hann lést 23. september árið 1939 þá 83 ára að aldri í Englandi en þangað hafði hann flúið vegna ofsókna nasista í Austurríki (Guðmundur D. Haraldsson, 2011).